|
|
24.03.2008 17:56:34 / ingibjorg
Þetta hljómar eins og fyrirsögn á páskatónleikatúr hljómsveitarinnar Á móti sól sem reyndar er ekki fjarri lagi! Komum að því síðar... Nú er maður aftur kominn í svollinn þ.e. Reykjavík og alvaran tekin við. Eftir mikið át og svefn í sveitinni verður maður víst að fara að hafa upp á sig skóna. Burtséð frá því voru páskarnir notalegir með fjölskyldufundum miklum og fyrrnefndu áti. Skemmst er frá því að segja að á laugardagskvöldið fór ég á sveitaball á Blönduósi. Þar sem maður er kominn á vissan aldur var maður með þeim elstu, mikið af börnum sem maður þekkti varla því þau voru orðin svo fullorðinsleg. Þetta var samt verð ég að segja stórskemmtilegt. Þar sem ég fíla Magna og hans hljómsveit ekkert stórkostlega var ég stundum voða góð með mig (sér í lagi þegar þeir tóku ógó hallærislegar lagasyrpur) en ákvað svo að gleyma því um stund og taka 16 ára krakkana til fyrirmyndar. Því mátti sjá mig á hælaháum skóm hoppandi fyrir framan sviðið með öllum beru að ofan strákunum með hendur upp í loft, ég tók þó ekki upp á að hrinda svona eins og alsiða er í svoleiðis aðstæðum. Þrátt fyrir skemmtilega danskennslu við Jón Otta hennar Dagnýjar sem ég vona að sjálfsögðu að hún muni njóta verð ég að segja að endirinn var bestur. Þar vorum við þrjú ásamt Telmu að grúppíast fyrir framan sviðið. Aðalmálið fyrst um sinn var nottlega að snerta Magna sem og við gerðum. Hart var barist um staðinn beint fyrir framan stjörnuna en þar voru tvær ungar stúlkur að grúppíast og vildu nottlega alls ekki missa staðinn sinn þrátt fyrir harða aðsókn frá okkar hendi. Telma ákvað þá að vingast við þær, fór á milli þeirra og setti hendurnar um axlir þeirra og hélt þeim uppi á léttu spjalli. Þær voru nú ekki alveg nógu ánægðar með þessa grúppíuboðflennu og voru við það held ég að grenja af gremju og hræðslu við þessa snargeðveiku gellu! Nú eftir það fór að hitna í kolunum við sviðið og ákvað ég að snúa mér að öðrum en Magna til að heilla (of margir um hituna þar). Finnst líka ósanngjarnt hvað allir dýrka alltaf söngvarana, hinir í hljómsveitunum fá aldrei eins mikla athygli! Þannig að ég tók mig til og fór að blikka hljómborðsleikarann, hann Heimi minn. Hann varð að sjálfsögðu uppveðraður, notaði mig reyndar aðeins til að sýna hinum strákunum hvað hann var vinsæll, lét mig kyssa á handarbakið sitt eins og einhverja undirlægju druslu en hvað um það...alltaf góðverk að gefa fólki egóbúst. En ég fékk svo Dagnýju og Jón Otta með mér í lið að heilla Heimi og allt þetta daður (blikk, bendingar og lærasýningar) að sjálfsögðu borgaði sig því okkur var boðið baksviðs á eftir...vehúúú. Það var reyndar suck ass eftirpartý, gaurarnir með kaffi og fljótlega á leiðinni í rútuna en góð saga engu að síður. Hápunktur ballsins hjá mér í það minnsta var svo þegar ein ung stúlka kom upp að mér og spurði hvort ég væri ólétt. Ég spurði hana þá hvort ég væri orðin svona feit að hún héldi að ég væri orðin ólétt og veslingurinn fór í kerfi og sagði að svo væri nú ekki en hún væri bara búin að heyra að ég væri ólétt...ég væri ekkert feit! Ég tók þessu nú ekki illa, hló innra með mér því mér datt í hug hvernig væri í pottinn búið. Þannig er nefnilega mál með vexti að á fésbókinni á veraldarvefnum er mynd af mér með ansi góða óléttubumbu og þeir sem ekki hafa fyrir því að skoða kommentin sem fylgja henni átta sig ekki á því að þetta er gabb, bara súkkulaðibumba! Þetta fannst mér ógeðslega fyndið og til að halda upp á óléttuna mína skellti ég í mér einum bjór og tók villt dansspor. Eftir villta tryllta eftirpartýið þurftum við svo að drulla okkur út enda allir farnir úr húsinu nema þriffólk. Þá komst ég að því að kápan mín var hvergi sjáanleg þannig að ég þurfti að hýrast úti á þunnum silkikjól og gollu. Stóra spurningin eftir þetta er svo...var þetta 3000 króna og kápu virði? Ég er ekki frá því að svarið sé já...!
En nú tekur hversdagslífið við...sem er svosum líka ánægjulegt, ávallt ný ævintýri!
Ykkar, Ingibjörg
»
03.03.2008 23:17:05 / ingibjorg
Eigi má ég vera eftirbátur ástkærs kennara míns og núverandi fyrrverandi tilvonandi tengdamóður sem bloggar víst eins og vindurinn. Daður er orð dagsins í dag, því miður ekki gjörðir dagsins í dag. Hver hefur ekki gaman að því að daðra. Þá vil ég meina daður í almennri merkingu, til að létta andrúmsloftið, eiga skemmtilegri samskipti og njóta stundarinnar. Daður þarf ekki að hafa kynferðislegan undirtón...þó að það sé auðvitað skemmtilegt þegar það á við. Einhvern veginn er fólk líka ótrúlega mismunandi tilkippilegt fyrir daðri...stundum smellur fólk og stundum er eins og maður sé að tala við vegginn. Eitt er þó víst...ég dýrka, dýrka, dýrka að daðra!
Ykkar
»
18.02.2008 13:12:33 / ingibjorg
Ohh hvað maður er menningarlegur, leikhúsferðir planaðar út í hið óendanlega...allavega Baðstofan og Kommúnan, hins vegar langar mig einnig að sjá febrúarsýningu Íslenska dansflokksins en hef þó fengið dræmar undirtektir hjá mögulegu fylgdarliði. Er ekki einhver sem vill endilega koma með mér á slíkan stórkostlegan dansviðburð??
Ykkar
»
01.02.2008 01:08:34 / ingibjorg
Ég verð að viðurkenna að ég er eins og versta gelgja. Þrátt fyrir að hafa farið í sund áðan í 9 stiga frosti (sjálfspíningarhvöt ég veit) og upplifað mig eldgamla í sturtunni með öllum 15 ára gellunum! En burtséð frá sturtuferðum mínum þá er ástæða gelgjustæla minna karlmaður...og ekki bara karlmaður heldur Robbie Williams. Ég var búin að gleyma honum síðan fyrir áramót þegar ég sat og naut hans með augunum þegar ég sat við ritgerðaskrif. Nú er ég aftur komin með augun á hann. Það hljómar kannski frekar illa en í einu myndabanda hans þegar hann fer úr sokkabuxum og sæja þú veist hvað ég meina....það er virkilega kynþokkafyllsta hreyfing sem ég hef nokkurn tímann séð, smáatriðin stelpur mínar, smáatriðin. Nú, ég held ég geti fullyrt það að ég myndi skipta út kynlífi alla mína ævi ef ég fengi eina nótt með þessum manni! Tja kannski ekki alveg alla ævi en ég myndi gera ansi mikið til að fá að sænga hjá honum. Ég verð bara að vera einlæg og tjá mig um þessar fantasíur mínar þó ég fái nánast skömm á sjálfri mér fyrir að hljóma eins og 15 ára vinkonur mínar fyrr í kvöld. Góðar stundir
»
29.01.2008 23:13:31 / ingibjorg
Í tilefni af því að ég fann upplýsingar um sjálfa mig á afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands varð ég að skrifa eilítið hér. Í sjálfumgleði minni gúglaði ég sjálfa mig (maður verður nú að vita hvaða upplýsingar koma upp þegar einhver/ef einhver gerir background research á manni). Nú, þar sem ég fletti í gegnum fjölmargar færslur um sjálfa mig fann ég upplýsingar úr félagatali Ungmennasambands Austur Húnavatnssýslu og ákvað að deila þeim upplýsingum með ykkur. Ég hef nú tvisvar keppt á Íslandsmeistaramóti...var þó ekki valin Íslandsmeistari eins og sumir aðrir...og tel sjálfa mig hafa verið ágætis íþróttamann, tók íþróttunum þó ekki af mikilli alvöru. Ég er þó ekki sátt við þessar upplýsingar þarna, þær eru bara frá því árin '95 og '94, það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og má þá helst nefna til afreka feikilöng spjótköst mín og hraði minn í 800 metrunum. Hendi hér inn tenglinum http://web2.toto.is/fritest/afr/keppendur/kep20690.htm. nei sussubía, sé ég svo ekki Ingibjörg Hanna Björnsdóttir ræktandi. Hér eru dómar um 5 vetra hryssu sem ég vissi ekki að ég væri ræktandi að á héraðssýningu í Húnaþingi. Ég kannast ekkert við hana Golu blessunina en móðir hennar Mánalýsa er þó í minni eigu. IS1999256275 Gola frá Hólabaki Litur: 1500 Rauður/milli- einlitt Ræktandi: Ingibjörg Hanna Björnsdóttir Eigandi: Björn Magnússon F: IS1992188801 Hamur frá Þóroddsstöðum Ff: IS1989188802 Galdur frá Laugarvatni Fm: IS1984287011 Hlökk frá Laugarvatni M: IS1988256095 Mánalýsa frá Eyjólfsstöðum Mf: IS1975176190 Máni frá Ketilsstöðum Mm: IS19ZZ287059 Gola frá Hvoli Mál: 142 - 138 - 66 - 142 - 29,0 - 18,5 Hófamál: Vfr: 8,9 - Va: 8,9 Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 6,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 7,0 = 7,57 Hæfileikar: 7,5 - 6,5 - 5,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 = 7,25 Aðaleinkunn: 7,38 Hægt tölt: 7,5 Hægt stökk: 7,0 Sýnandi: Valur Kristján Valsson
Þetta er nú svosum ágætiseinkunnir þannig lagað en þær hefðu nú verið ef um ræktandann hefði verið að ræða í kynbótasýningunni. Jæja þetta hefur verið ansi fræðandi og einkar áhugavert um sjálfa mig. Best þykja mér þó afrek mín sem tilgreind eru þegar ég var 10 og 11 ára. Góðar stundir og hamingja fylgi ykkur
»
15.12.2007 21:25:39 / ingibjorg
Það mætti halda að ég væri því miður látin, heyrist ekki múkk í mér. Hef svosum lítið gert nema læra og hanga...þá meira að hanga en læra, því miður. Sá auglýsingu hérna áðan um hárlengingar....ætti kannski að fá mér svoleiðis og aflita hárið í leiðinni, ég yrði falleg! Ég held barasta að jólafílingurinn fari að kikka inn, hann hefur reyndar aldrei gert það fyrr en ca á þorláksmessu eða aðfangadag heima en ég held barasta að ég sé í gírnum og hálfpartinn búin að vera í honum í um nokkurn tíma. Við Kris skiluðum barninu (Huldu) af okkur, sendum hana með flugi til Akureyrinsis, þar er hún lent núna og að öllum líkindum í mjög góðum höndum. Það var falleg kveðjustund, kossar á flugi, og Hulda á leið í röðina en vissi ekki neitt...og skemmti fólkinu sem beið í blessuðu flugstöðinni (góð saga). Eftir það áttum við rómantískan göngutúr á Laugaveginum og enn rómantískari kvöldverð á Horninu. Því má til gamans geta að á tímapunkti horfðu ansi margir á okkur þar sem við örkuðum saman, ég með höndina á öxl kristjönu og hún hélt um mitti mitt og við reifar og glaðar...ansi hýrar...að öllu leyti hefur fólk haldið. Þetta er nefnilega merkilegur andsk. sérstaklega þar sem ég hef tvisvar tekið eftir því þar sem ég hef verið á rölti með móður minni á fjölmennum stöðum og stundum þá held ég svona um öxlina á henni (svo þægileg hæð þið skiljið og hún stundum um mittið á mér og þá horfir fólk mjög undarlega á okkur...meira en venjulega. Það heldur líklega að þarna hafi eldri kona, þá móðir mín, heldur betur komist í feitt og yngt upp...þá um 35 ár! Jæja þetta var falleg og hýr saga fyrir jólin....ekki missa ykkur í prófalestri...engin ástæða til að lesa yfir sig!
»
09.11.2007 01:13:32 / ingibjorg
Þegar ég verð fullorðin ætla ég að finna mér mann sem er sniðinn að mínum þörfum. Um helgina er ég að fara í sextugsafmæli föður míns þar sem við systkinin verðum veislustjórar. Nú, við erum að undirbúa litla sögu sem sögð verður í ævintýrastíl (þetta á faktíst séð að vera leyndarmál þannig að þið verðið að lofa að segja ekki frá . Munum við þar rekja gróflega sögu föður míns og móður. Ætla ég að gefa ykkur smá preview: "Ólík sjónarmið komu þó iðulega fram þar sem hjónin höfðu oft mismunandi skoðanir á því hvernig ætti að haga vinnunni. Vildi frúin ganga strax og örugglega til verka en bóndinn var þó eilítið rólegri í tíðinni. Gaman er að nefna eitt sinni er húsfreyjan brá sér af bæ í hádeginu til að fá keypt egg á nágrannabæ einum. Þetta var að sumri til, mikið umleikis og ekki þess kostur að eyða löngum tíma í annað en útiverk. Áður en hún fór hafði hún að sjálfsögðu tekið til mat ofan í fjölda vinnufólks. Bóndi og vinnufólk nutu matarins og skeggræddu ýmis mál í rólegheitunum. En þegar heimilismenn urðu varir við húsfreyju var öllu tali skyndilega sleppt og menn hurfu út til verka sinna eins og hendi væri veifað. Þótti greinilegt á aksturslagi hennar að bændur á Sveinsstöðum myndu byrjaðir að rifja." Þetta er reyndar allt saman þannig að það virkar kannski ekki fyndið fyir þá sem ekki þekkja til en þeir sem þekkja til foreldra minna og heimilislífsins skilja þetta! En ég semsagt er að fara í afmæli hjá föður mínum, opið hús og öllum velkomið að koma þannig að ég býst við því að það muni verða ansi glatt á hjalla. Matur, vín, skemmtiatriði og dansiball með hljómsveit er það sem verður á dagskrá og hlakka ég mjög mikið til að dansa við föður minn sem ég kýs að tilnefna sem danskóng svæðisins!
»
01.11.2007 21:34:52 / ingibjorg
Mig langar í bíó, Helena tjáði mér það að Syndir feðranna væri góð, margra vasaklútamynd og áhrifamikil. Eastern promises hljómar spennandi og ekki skemmir Viggo Mortensen fyrir! Svo eru alltaf fleiri sem væri allt í lagi að sjá...maður myndi ekki neita bíóferð. Stefni á að fara í bíó um helgina...vill einhver vera memm??!
»
23.10.2007 09:26:16 / ingibjorg
Svo sannarlega var og hét gærdagurinn mánudagur til mæðu, hver leiðindin á fætur öðrum sem sköpuðu þennan líka yndislega dag...ha. En nú er kominn nýr dagur, ný byrjun og ný ævintýri til að takast á við. Ætla ég að deila með ykkur góðu tipsi um hvernig á að ná sér í karlmann/kvenmann. Ég heyrði góða sögu frá móður minni þar sem ég var næstum grenjandi (þar sem maður verður alltaf svo meyr og lítill í sér þegar maður rekur hrakfarir fyrir móður sinni...maður verður að lítilli stelpu). Burtséð frá næstum grenjinu þá kom þessi saga upp sökum bónar minnar um slúður úr sveitinni. Málið er semsagt að fara á vídjóleigu og leigja sér mynd, á meðan að á þessu stendur, fylgist maður með fólkinu og athugar hvort ekki sé einhver þar í sömu sporum og maður sjálfur...einmana sál sem fer einn heim að horfa á spólu og pikkar auðvitað upp þá gellu/gaur og spyr hvort maður megi ekki bara koma heim með henni/honum! Ansi góð og nýstárleg leið myndi ég telja! Veit samt ekki hvort ég muni fara að stunda vídjóleigurnar til þess arna.
Ykkar
»
20.10.2007 13:23:00 / ingibjorg
ég segi nú ekki meir...þetta er sko keppnis. Draumurinn minn að verða svona góð á súlunni! tjékk ðis át http://youtube.com/watch?v=GM5zBOVwYlI þið vitið hvar mig verður að finna næstu vikur...í pole dancing
»
04.10.2007 21:17:26 / ingibjorg
Ég fer að verða hálfhrædd og hissa á sjálfri mér. Það byrjaði allt fyrir um tveimur til þremur vikum. Þá lá ég í makindum mínum upp í rúmi (það var ekki einu sinni að ég hafi haft karlmann mér við hlið , þar hugsaði ég um allt og ekkert og kom mér allt í einu til hugar að það yrði nú bara ansi notalegt að eignast barn á næsta ári...útskrifast í júní og eignast barnið svona í ágúst eða september. Þessa hugsun hef ég núna haft á bakvið eyrað þrátt fyrir að barneignir séu ekki á fimm ára planinu. Áðan sat ég svo grenjandi yfir Brothers and sisters og var ákveðin í að eignast stóra fjölskyldu, helst 4-5 börn...ég hreinlega veit ekki hvar þetta mun enda....vonandi þó áður en ég verð vanfær fyrir aldur/plön fram! Er farin í sund...undirmeðvitundin sennilega að vonast til að ég verði ólétt í heita pottinum, ég hef nefnilega heyrt að það sé einkar góður staður til að geta barn!
»
02.10.2007 00:44:10 / ingibjorg
Fyrst að Telma er að skrifa ritgerð er eins gott að ég skrifi eitthvað svo hún hafi nú eitthvað að gera þessi elska. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég lifi bara í sjálfsblekkingu, það eru svo margir sem gera það af hverju ekki ég líka? Ætli líf mitt sé allt ein sjálfsblekking, eins og þeir sem til mín þekkja vita að þá geta ég varla talist hógvær manneskja (svona varðandi vissa hluti), ég er að spá í hvort ég lifi í sjálfsblekkingu varðandi fegurð mína og undursamlegheit...annað eins hefur nú komið fyrir fólk! Iss nei ég er alltof sjálfumglöð til að vilja trúa því....ég kýs að halda uppteknum hugsunarhætti áfram Éggetsvosvariðfyrirþað, heilinn á mér er ein steypa núna
»
10.08.2007 23:09:58 / ingibjorg
Ég bið ykkur auðmjúklegast afsökunar á tæknilegum mistökum sem ekki
virðist vera hægt að breyta. Einhvurra hluta vegna koma engar
línuskiptingar fram í færslunni hér að neðan.
»
10.08.2007 22:29:07 / ingibjorg
Allt þetta drasl á netinu sem maður getur loggað sig inn á og
eignast vini í gegnum eða fólk sem á eitthvað sameiginlegt, ég veit
ekki með'etta. Það er held ég aðallega það að ég nenni ekki að vera
á þessu öllu, myndi aldrei nenna að sinna því og er fyrir það
fyrsta of löt til að setja upp einhverja fína síðu, á fullt í fangi
með þessa blessun. Er á facebook núna sem þykir víst það heitasta í
dag en æj ég veitðaðekki. Til hamingju allir kynvillingar þessa
lands og annarra, helgin sem er að ganga í garð er ykkur til
heiðurs og vona ég innilega að hún verði skemmtileg. Sjálf ætla ég
að sjá til hvort ég muni taka þátt í gleðigöngunni, fer að vinna
seinnipartinn en myndi gjarnan vilja kíkja niður eftir enda hýr með
eindæmum (þið megið ráða hvora meininguna þið leggið í orðið).
Gleðin mun svo sannarlega vera við völd. Það gladdi mitt litla
hjarta að sjá g heyra myndband með laginu "Ég er eins og ég er",
sællar minningar því það árið var það eina sem ég hef verið á gay
pride og ekki síst sökum þess að í myndbandinu, sem eru
yfirlitsmyndir frá gay pride, sá ég fegursta kynvillingsfés eða
lellufés sem ég þekki...fésið á henni Auði minni. Það var
einstaklega ánægjuegt og ég hrópaði upp yfir mig-Góð saga. Hey góð
saga...Ég fór út að borða á Austur Indíajfelagið á miðvikudaginn
með þjóðfræðigellunum, sjitt hvað það var gott Svo virðist vera að
ég hafi frá engu að segja nema vinnusögum, ég geri ekki neitt
merkilegt og því er það eina sem eitthvað reynist markvert vera
elliheimilissögur sem ég ætlaði nú reyndar að minnka en ég barasta
ræð ekki við mig! Ég verð að viðurkenna að þó ég geti orðið þreytt
og pirruð í vinnunni og stefni ekki á að hafa þetta að
framtíðarstarfi þá hefði ég aldrei viljað skipta á þessari vinnu og
annarri þetta sumarið. Það sem ég hef lært, kynnst og upplifað
hefur í rauninni verið frábært. Karakterarnir eru oft og tíðum
stórkostlegir, maður hefur kynnst mörgu góðu fólki sem hefur kennt
manni ýmislegt um lífið. (Ég held ég sé eitthvað extra væmin núna,
isss það gera hormónarnir). Það eru ansi margir sem ég mun sakna
þegar ég hætti. Eitt uppáhaldið mitt sem fær mig alltaf til að
hlæja,köllum hana Önnu, sagði við eina eitt kvöldið þegar hún var
að fara að sofa og starfsmaðurinn kom inn til hennar: Anna: Komstu
ekki með byssuna? Starfsmaður: Ha, byssuna? Anna: Já ég heyrði
talað um það frammi að það ætti að drepa mig! Fyrir einn
kaffitímann vorum við tvær að spjalla við Önnu og spyrjum "Ertu
ekki orðin svöng?" þá svarar hún "Haaa er ég þröng". Það er ljótt
að segja frá því en ég held við höfum sjaldan hlegið jafn mikið. Í
öðrum kaffitíma voru miklar diskúsjónir hjá Önnu um jarðaför sem
hún ætlaði að fara í. Við spyrjum hana út í þessa meintu jarðaför
og hún segir "Nú á ekki að jarða manninn sem dó í morgun, eru ekki
allir að fara?" Við reynum að útskýra að það hafi enginn dáið og
því þurfi ekki að halda neina jarðaför og svo sé líka að koma
kaffi. Þá spyr hún í forundran "Haaa er erfidrykkjan á undan
jarðaförinni?" Þetta er líka orðið þannig að allt sem vellur upp úr
henni er fyndið og hvernig hún segir allt, hún þarf ekki að annað
en að segja "Halló" og ég fer að hlæja. Svo er kærastinn minn, hann
er sannkallaður daðrari og ég hef svo gaman að honum. Hann er
sannkallaður aðdáandi minn og dýrkar allt sem ég segi eða geri. Það
er ekki slæmt að eiga einhvern sem hreinlega dáir mann! Það er sama
hvað ég geri "Þú ert svo flink", "þú dansar svo vel", "þú syngur
svo vel", "þú ert svo falleg", "þú ert svo skemmtileg", "ég er svo
skotinn í þér". Hehe og það besta er að maður þarf ekki annað en að
þurrka af borðinu, hreyfa fæturna örlítið, synga nokkrar línur,
segja eina setningu og vera eins og ég er til að heyra
þetta...hreinasta dásemd. Samt er hann soltið tregur til að giftast
mér, heldur að ég sé bara að gera grín...trúir ekki að ég vilji
skarf eins og hann en þegar ég segi honum að við höfum trúlofað
okkur um morguninn segir hann "Nújá, er það svo" og horfir í
smástund einbeittur út í loftið en lítur svo á mig, brosir og
aðdáunin skín úr augunum á honum. haldiði að það sé að vera slíkur
lukkunnar pamfíll sem ég er, að eiga slíkan kærasta. En það er
stutt á milli gráturs og hláturs í þessu eins og öðru, maður fær
ýmist klapp á brjóstið eða högg í andlitið eða það er horft
blíðlega á mann og þakkað fyrir hvað maður er góður eða maður er að
drepa manneskjuna! jæja held að þetta sé orðið gott í bili Hýrar
kveðjur til vina og vandamanna nær og fjær
»
27.07.2007 10:50:07 / ingibjorg
Hér í Færeyjum er bara kjöraðstaða til alls. Ég er voða hrifin,
þetta er svaka kósí allt saman, umhverfið, náttúran, húsin, svona
eins og á Íslandi fyrir allt að 50 árum. Þeir eru þó að
tæknisinnast þar sem ég get stolist í þráðlaust net hjá einhverjum
nágranna hérna en við erum með aðstöðu í Læraraskúlan. Við komum á
þriðjudagskvöld og komum okkur þá fyrir og fundum kippu af bjór í
ískápnum okkur til mikillar ánægju. Færeyski bjórinn er bara helv.
góður verð ég að segja. Á miðvikudeginum vorum við aðallega að
slæpast og sjá bæinn, fórum í rustikabudina eða russan eins og
Færeyingar orða það og byrgðum okkur upp af ruðvíni og bjór. Einnig
fórum við í stórmarkaðinn og versluðum endalaust mikið af góðum
mat...svo þegar við komum heim var veisla, sannkölluð
átveisla....ummmm. Eftir átveisluna lá leið okkar niður í bæ og
könnuðum við aðeins barina, jæja eða bara einn bar. Þar var mikið
fjör og við hittum bæði íslendinga og Færeyinga sem komu svo í
eftirpartý til okkar á Læraraskúlan, það var ansi gaman. Í gær
leigðum við svo bílaleigubíl og höfum aðeins keyrt um eyjarnar,
fórum í Fuglafjörð, til Klakksvíkur, Tóftir, í Götu o.fl. Það
rigndi eins og hellt úr fötu í allan gærdag!!! Ég hef ekki vitað
eins mikla rigningu og þoku, varð hrædd um að helgin yrði öll svona
og keypti mér stígvél...týpískt því núna er háskýjað og fínt veður
en það er eins gott að það rigni bara aðeins svo ég geti vígt nýju
stígvelin mín (þau eru rauð með reimum). Reyndar heldur
samferðafólk mitt að ég hafi eitthvað fetish gagnvart stígvélunum
því ég var svo ánægð með þau í gær og fór ekki úr þeim eftir að við
komum heim.
Úfff tekur átið við...morgunmatur er kominn á borð, best að
drífa sig í átið...
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
|